Þjónustuhús Landsvirkjunar Hellu

Húsið er hannað á grundvelli Svansvottunar og er á Faxaflötum 2a á Hellu og mun þjóna starfsemi tengdri Vaðölduveri, fyrsta vindorkuveri Íslands og markar mikilvægt skref í uppbyggingu innviða fyrir rekstur vindorku hér á landi.
Byggingin er 465 fermetrar á einni hæð og skiptist í stórum dráttum í annarsvegar mannvistarsvæði og hins vegar verkstæðis- og lagerhluta. Húsið er staðsteypt með léttu þaki, einangrað og klætt að utan með með litaðri álklæðningu.